Velkomin á vef Bjarkaráss
Hæfingarstöðin Bjarkarás er fyrir fólk með þroskahömlun. Meginmarkmið með starfsemi Bjarkaráss er að veita einstaklingsbundna og fjölbreytta þjónustu.

Þjónusta
Bjarkarás tekur að sér ýmis pökkunar- og álímingarverkefni fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Smiðja
Í Smiðju er unnið skapandi starf með megin áherslu á listmunagerð úr leir, tré og gleri. Listmuni þessa er hægt að skoða og kaupa í Smiðjubúð á opnunartíma Bjarkaráss, kl. 9 -16 alla virka daga.
Gróðurhús
Í gróðurhúsi fer fram lífræn ræktun grænmetis. Úrvalið er nokkuð misjafnt eftir árstíma en frá apríl og fram í október er hægt að kaupa afurðirnar í gróðurhúsinu á opnunartíma Bjarkaráss, kl 9 – 16 alla virka daga.
|